Undirbúningur flutninga
Við mælum með að hafa samband við okkur sem fyrst þegar búslóð eða fyrirtækjaflutningur er í undirbúningi. Hér eru nokkur góð ráð til að tryggja hnökralausa framkvæmd:
• Gakktu úr skugga um að aðgengi fyrir flutningabíl sé í lagi, með að minnsta kosti 10 metra bili.
• Pakkar/kassar ættu að vera einsleitir í stærð.
• Tryggðu að nægur mannskapur sé til staðar á báðum stöðum.
Hver erum við?
Sending ehf er flutningaþjónusta sem sérhæfir sig í flutningum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við einbeitum okkur að búslóðaflutningum og fyrirtækjaflutningum, auk þess að bjóða upp á þjónustu við að sækja og senda sendingar.
Markmið okkar er að veita persónulega þjónustu og ráðleggingar þegar kemur að flutningum, þar sem hver flutningur fær sérstaka athygli.